Höfundur og myndskreytir: Rósa Grímsdóttir
Monday, September 3, 2012
Friday, August 31, 2012
Um bókaflokkinn
- Bókaflokkur um sköpun og tortímingu
Lína Descret er íslensk myndskreytt fantasía sem sækir aðallega innblástur frá japönskum teiknimyndum (anime) og japönskum myndasögum (manga). Bókin er sú fyrsta í fimm binda bókaflokki sem fjallar um byltingu í heimi þar sem tortímendur eru kúgaðir af þeim sem sköpuðu þá, sköpurunum.
Skaparar skapa tortímendur. Tortímendur eru kúgaðir í þessum heimi og lokaðir inni þar sem óttinn við mátt þeirra er afar mikill. Þann ótta má rekja til stríðs sem háð var á milli þessara tveggja tegunda fyrir um 1000 árum síðan. Sá ótti kemur þó ekki í veg fyrir að tortímendur séu notaðir sem þrælar skaparanna. En eingöngu eftir að hafa gengist undir stranga þjálfun í búðum fyrir tortímendur.
Ein af aðalpersónunum, Anna Fíl er þó undantekning þar sem hún er talin vera friðsamur tortímandi og fær því að ganga laus. Tortímendur mega alls ekki skapa og skaparar mega ekki undir neinum kringumstæðum tortíma.
Aðalpersónan er einstök í þessum heimi þar sem hún er hálfur skapari og hálfur tortímandi. Vegna lögmála þessa heims vekur þessi mótsagnakennda tilvist hennar upp andúð.
Með heiminn á móti sér, getur Lína Descret, eini skaparatortímandinn komið á friði á milli þessara tveggja tegunda og stöðvað þeirra eilifa stríð?
Bókin fæst í verslunum Eymundsson, Nexus, bóksölu stúdenta, Forlagsbúðinni á Fiskislóð eða hjá höfundinum sjálfum. Bókin er einnig til sem rafbók á www.emma.is.
Facebooksíðan
Sýnishorn úr bókinni.
Tuesday, August 7, 2012
Myndskreytingar
Hér má sjá myndir úr bókinni ásamt myndum sem eru í vinnslu og fleira.
http://rosanovella.deviantart.com/gallery/36105306
Myndin hér að neðan er í vinnslu og hugsuð sem grín og áskorun.
http://rosanovella.deviantart.com/gallery/36105306
Myndin hér að neðan er í vinnslu og hugsuð sem grín og áskorun.
Thursday, July 26, 2012
Anna Rís Fíl Creator
Var myrt fyrir tveimur árum síðan, erfir Línu að dularfullum pakka sem sendir hana af stað í lífshættulega leit.
Tegund: Hálfur skapari með tortímandamátt
Máttur: Jörð, gat m.a. látið ræturnar vaxa upp úr jörðinni og vefjast utan um andstæðingana rétt eins og æðsti skapararinn Afternoon Tea getur gert.
Aldur: 18 (látin)
Foreldrar: Cre-Tar (upprunalegt nafn: Phílípus) Concequences Creator og Crea-Títa (upprunalegt nafn: Evíta) Rís Fíl Creator, sem var eytt fyrir tíu árum síðan af föður Línu, honum Des.
Systkini: Phílíus Rís Fíl
Heitbundin Bobbý Concequences
Wednesday, July 25, 2012
Sölustaðir
Bókin er til á eftirfarandi stöðum.
Eymundsson: Hafnarfirði, Kringlunni og Smáralind.
Forlagsbúðinni á Fiskislóð.
Nexus
Bóksölu Stúdenta
Bókabúðin Eskja
Panama.is
emma.is-sem rafbók
Og kemur vonandi bráðlega á skinna.is.
Eymundsson: Hafnarfirði, Kringlunni og Smáralind.
Forlagsbúðinni á Fiskislóð.
Nexus
Bóksölu Stúdenta
Bókabúðin Eskja
Panama.is
emma.is-sem rafbók
Og kemur vonandi bráðlega á skinna.is.
Tuesday, May 29, 2012
Minnst á bókina í Skorningum! :)
Loksins, loksins var minnst á bókina í fjölmiðlum!
„Lína Descret eftir Rósu Grímsdóttur er fyrsta bókin í fantasíubókaflokki sem er ritaður undir áhrifum japanskra teiknimynda."
Að vísu í algeru framhjáhlaupi en engu að síður var maður ekki gleymdur í þetta skiptið.
www.ruv.is/frett/ras-1/islenskar-furdusogur-og-runatyr
Hann Tmar af rithringnum var líka í viðtali í þættinum að fjalla um útgáfuna Rúnatýr og nýjustu bók sína, Þoku.
Þáttinn má hlusta á í heild sinni hérna.
www.ruv.is/sarpurinn/skorningar/28052012

Subscribe to:
Posts (Atom)