Það gladdi mig að sjá umfjöllun um íslenskar ævintýrabækur þar sem ég hafði óttast að þær yrðu útundan í jólabókaflóðsumræðunni.Mig langar til þess að bæta við fleiri upplýsingum í þá umræðu. Í raun er meiri gróska í íslenskum ævintýrabókum heldur en haldið er. Í raun eru komnar út þrjár íslenskar ævintýrabækur og einnig er mikil gróska í þýðingum á ævintýrabókum. Eldingarþjófurinn og Tortryggni töframaðurinn sem var ein af opnunarbókum rafbókarvefjarins emma.is eru dæmi um slíkar þýðingar. Þriðja íslenska ævintýrabókin er líka myndskreytt sem er ákveðin nýjung innan ævintýrabóka en bókin sjálf er innblásin af japönskum teiknimyndasögum og teiknimyndum.Á bókamessunni spjallaði ég einmitt við útgáfufélagið Tind um þá miklu sprengju sem væri að eiga sér stað í íslenskum ævintýrabókum sem hingað til höfðu verið fjarverandi í bókmenntaumræðu og voru þeir sammála mér um að þetta væri næsta æðið á eftir sakmálasögum. Eins og greinarhöfundur menningarpressunnar benti á áttu líka sakamálasögur hvergi höfði að halla fyrir varla en áratug síðan, þegar að Arnaldur Indriðason reið á vaðið með sína fyrstu sakamálasögu, Synir duftsins. Spurning hvenær ævintýrabækur fá sömu athygli og sakamálasögurnar.Einnig má nefna Rúnatýr sem var stofnað fyrir einu ári síðan og leggur áherslu á jaðarbókmenntirnar þar á meðal fantasíu og hyggjast gefa út ævintýrabækur með vorinu.(Fimm þjófar er ekki með í upptalningunni i grein Rúnatýrs, þar sem það var ekki vitað um útgáfu þeirra bókar á þeim tíma.)Margir meðlimir Rithringsins eru með ævintýrabækur í smíðum en þar sem álitið á ævintýrabókum hefur ekki verið sérlega hátt, hafa margir hverjir verið tregir til að leita til útgefenda með efni sitt en þeir sem gerðu það, fengu flestir neitun. Einn af stofnefndum Rúnatýrs er meðlimur á Rithringnum.Ég ákvað því að stíga skrefið fyrir hönd hinna og sýna þeim í verki að það væri alveg hægt að koma með ævintýrabók á íslenskan markað. En ég ákvað að fara sjálfsútgáfuleiðina þar sem það hafði varla þekkst áður að forlög tæku við ævintýrabókum. Því kom það hressilega á óvart að sjá tvo forlög, Tind og Sögur, vera að gefa út ævintýrabækur í sama mánuðinum og mín kom út.Því er spurning mín sú hvort að möguleiki sé á því að bæta þessum upplýsingum í umræðuna um íslenskar ævintýrabókmenntir, í ljósi þess að byltingin er raun stærri en margir gera sér grein fyrir.Fleiri upplýsingar veittar fúslega ef óskað er.Með von um jákvæðar viðtökurRósa Grímsdóttirgsm 6950460sími 5621460Miðtún 80105 Reykjavík.
Höfundur og myndskreytir: Rósa Grímsdóttir
Showing posts with label Fréttir. Show all posts
Showing posts with label Fréttir. Show all posts
Friday, December 30, 2011
Opið bréf til fjölmiðla um fantasíubyltinguna
Góðan dag og gleðilega hátíð!
Friday, December 23, 2011
Jólakveðjur!
Gleðileg jól og farsælt komandi ár! Þakka kærlega fyrir allan stuðninginn í hinu alræmda jólabókaflóði! :D
Eldgömul mynd sem ég gerði í Paint en það er það eina jólalega sem ég hef gert í tengslum við Línu Descret. :) Persónan Skalli sem kemur ekki fram fyrr en í lok þriðju bókar en er engu að síður mjög mikilvæg fyrir allan bókaflokkinn í heild sinni.
Wednesday, December 21, 2011
Frá upplestrinum í Tjarnarskóla
Rósa Grímsdóttir, fyrrverandi Tjarnarskælingur, kom og las upp úr nýrri bók sinni; Línu Descret, fyrir skömmu. Rósa sækir innblástur sinn frá japönskum teiknimyndasögum og teiknimyndum og myndskreytti sjálf bókina. Hún rifjaði upp að þegar hún útskrifaðist úr Tjarnarskóla fékk hún verðlaunagrip, mús með spjót. Á gripnum stendur: ,,Rósa á rithöfundabrautinni". Við vorum sannspá! Við óskum Rósu til hamingju með bókina og óskum henni alls hins besta á þessari skemmtilegu braut.
http://www.tjarnarskoli.is/
Monday, December 19, 2011
Saturday, December 17, 2011
Útgáfuteiti, upplestur í Tjarnarskóla, rafbók og annað sem gerðist í vikunni.
Þessa vikuna var nóg um að vera í sjálfsútgáfunni. Byrjaði á því að vera með upplestur í Tjarnarskóla á þriðjudaginn og gekk hann bara nokkuð vel. Þakka skemmtilegar fyrirspurnir og hlýlegar móttökur. :)
Á miðvikudaginn var svo upplestur og útgáfuteiti í Eymundsson Austurstræti ásamt Huginn (Óðinsauga-Sígildu ævintýrin), Sif (Hvolpahandbókin) og Hildi (Þýðandi Eldingarþjófsins). En öll höfum við það sameiginlegt að tengjast Óðinsauga útgáfunni á einhvern hátt. Sif og ég fengu aðstoð við sjálfsútgáfuna frá Huginn og því var tilvalið að slá til sameiginlegrar veislu og upplesturs.
Fleiri myndir frá útgáfuteitinu.
http://www.facebook.com/media/set/?set=a.200936103328120.49952.145621842192880&type=3
Þakka þeim sem mættu og þeim sem ekki gátu mætt en vildu það. :)
Á föstudaginn birtist auglýsing í Fréttatímanum og einnig var víst umfjöllun um bókina í Laugardalsblaðinu sem ég hef reyndar ekki enn séð en heyrt af.
Auglýsingin í Fréttatímanum.
http://issuu.com/frettatiminn/docs/16_desember_2011/15?zoomed=&zoomPercent=&zoomX=&zoomY=¬eText=¬eX=¬eY=&viewMode=magazine
Og síðast en ekki síst er bókin nú til sem rafbók á Emma.is.
http://www1.emma.is/ collections/aevintyri/ products/lina-descret
Einnig er hún til á Panama.is og í vefverslun og verslun Nexus.
http://panama.is/Index.aspx? pageId=product&item=6849
http://nexus.is/vefverslun/baekur/8991-lina-descret-vol1.html
Á miðvikudaginn var svo upplestur og útgáfuteiti í Eymundsson Austurstræti ásamt Huginn (Óðinsauga-Sígildu ævintýrin), Sif (Hvolpahandbókin) og Hildi (Þýðandi Eldingarþjófsins). En öll höfum við það sameiginlegt að tengjast Óðinsauga útgáfunni á einhvern hátt. Sif og ég fengu aðstoð við sjálfsútgáfuna frá Huginn og því var tilvalið að slá til sameiginlegrar veislu og upplesturs.
Fleiri myndir frá útgáfuteitinu.
http://www.facebook.com/media/set/?set=a.200936103328120.49952.145621842192880&type=3
Þakka þeim sem mættu og þeim sem ekki gátu mætt en vildu það. :)
Á föstudaginn birtist auglýsing í Fréttatímanum og einnig var víst umfjöllun um bókina í Laugardalsblaðinu sem ég hef reyndar ekki enn séð en heyrt af.
Auglýsingin í Fréttatímanum.
http://issuu.com/frettatiminn/docs/16_desember_2011/15?zoomed=&zoomPercent=&zoomX=&zoomY=¬eText=¬eX=¬eY=&viewMode=magazine
Og síðast en ekki síst er bókin nú til sem rafbók á Emma.is.
http://www1.emma.is/
Einnig er hún til á Panama.is og í vefverslun og verslun Nexus.
http://panama.is/Index.aspx?
http://nexus.is/vefverslun/baekur/8991-lina-descret-vol1.html
Sunday, December 4, 2011
Rafbókarvefurinn emma.is, upplestur í næstu viku og Nexus netverslun.
Fór á opnunarhátíð emmu.is á fimmtudaginn 1.des. Bókin verður bráðlega að rafbók sem verður seld á vefnum hjá þeim.
Nánari upplýsingar um vefinn er að finna á www.emma.is.
Mæli eindregið með þessu flotta framtaki hjá emmu.is. :) Fyrir alla skúffuhöfunda, sjálfstæða útgefendur og bara alla. :)
Verð með upplestur í Tjarnarskóla (gamla skólanum mínum :)) 13.des.
Bókin er svo komin í netverslun Nexus!
http://nexus.is/vefverslun/baekur/8991-lina-descret-vol1.html
Alger snilld að þeir séu komnir með netverslun, mæli eindregið með henni hvort sem það er til að kaupa þaðan eða skoða vöruúrvalið og kaupa í búðinni sjálfri. :)

Grein eftir Hildi Enolu um tilurð bókaflokksins
Skrifaði heilan bókaflokk í atvinnuleysinu
Rósa Grímsdóttir rithöfundur og nú nemi á myndlista-
og hönnunarsviði Myndlistarskólans í Reykjavík varð atvinnulaus í maí 2009. Hún
ákvað strax að líta á atvinnleysið sem tækifæri til að vinna að því að gera
ástríðu sína að atvinnu og nýtti sér tímann til að skrifa. Hún fór á námskeið á
vegum Vinnumálastofnunar sem heitir BTM, Breytingar, tækifæri, markmið og segir
að það hafi hjálpað sér mjög mikið. Hún nýtti sér það sem hún lærði þar og
setti upp markmið og hefur nú tveimur árum seinna náð öllum sínum markmiðum með ötulli
vinnu og eljusemi í atvinnuleysinu.
Í þann tíma nýtti Rósa öll þau tækifæri
sem henni gáfust til að aðstoða hana við að láta drauminn rætast. Eitt af því
sem einkennir atvinnuleysi er að því fylgir yfirleitt frekar tregt fjárstreymi
en Rósa hefur nýtt sér öll þau tækifæri sem henni gefast og er t.d. mjög virk á
rithringnum sem er ókeypis vefmiðill þar sem rithöfundar vinna saman og aðstoða
hvern annan við að móta og þróa skrif sín. Hún tók þátt í NaNoWriMo (National
novel writing month) en það er líka netmiðill þar sem rithöfundar frá mörgum
löndum ,,hittast" og hvetja hvern annan til dáða í einn mánuð. Markmiðið er að
skrifa heila skáldsögu í nóvember mánuði með því að skrifa 1600 orð á dag í
einn mánuð. Rósa vann einmitt uppkastið af tveimur af sínum bókum í þessu
átaki. Fór meira að segja fram úr áætlun
og kláraði skammtinn fyrir miðjan mánuð.
Í gegnum fólk sem hún kynntist í ritsmiðjunni
var henni bent á að sagan hennar væri betri ef hún væri myndskreytt. Rósa sem
hefur alltaf teiknað en ekki litið á það sem sinn aðal hæfileika dreif sig m.a. á
myndlýsinganámskeið á vegum Myndlistarskóla Reykjavíkur og hóf þar að
myndskreyta bækur sínar.
Rósa er mikill aðdáandi japanskra teiknimyndabóka
og bóka sem kallast á ensku light novel en þessi stíll hefur ekki enn fengið
íslenskt nafn en stungið hefur verið upp á orðinu myndræn skáldsaga. Stíll Rósu er
gjörólíkur því sem sést hefur á íslensku áður og myndi sjálfsagt flokkast undir
fantasíu þar sem skortur er á fjölbreytileika í íslenskri bókaútgáfu og
íslendingar einfaldlega ekki kunnugir öllum þeim aragrúa af efni sem gefið er
út undir samheitinu vísindaskálskapur og fantaísur. Það er fyrst nú að við erum
að fá bókaútgáfuna Rúnatý sem ætlar að sérhæfa sig í “öðruvísi efni” öllum
íslenskum og svo eru einnig að koma út tvær hefðbundnar fantasíur eftir
íslenska höfunda fyrir þessi jól.
Þar sem forlög hafa hingað til verið treg að taka við fantasíum, ákvað Rósa fljótlega að fara út í sjálfsútgáfu án þess að banka fyrst á dyr þeirra. Það er einnig Lifandi vinnusmiðjunni, vinnuátaki á vegum vinnumálastofunnar, að þakka að hún ákvað að fara út í frumkvöðlastarfsemina og gefa bókina út sjálf.
Rósa fékk þó aðstoð frá útgáfufélaginu Óðinsauga við prentun og dreifinguna, hvernig best væri að snúa sér í þeim málum og það var einnig Rithringnum að þakka, að hún komst í kynni við forleggjarann Huginn Þór Grétarsson.
Wednesday, November 23, 2011
Myndir frá Fjöruverðlaununum-Kellingabækur í Gerðubergi
Náðist á mynd ásamt Birgittu frá Bókabeitunni og upplesaranum frá Vestfirska forlaginu. :)
Það var sérstaklega gaman að hitta aðra útgefendur og skiptast á ráðum. Fyrir utan þann heiður að fá að vera með. :)
Fleiri myndir er að finna á slóðinni:
http://www.facebook.com/photo.php?fbid=235998626467657&set=a.235929403141246.63624.232348753499311&type=1&theater
Saturday, November 19, 2011
Örlítil umfjöllun um bókina í vefmiðli :)
Lína Descret . Eftir Rósa Grímsdóttir
Eins og lífið hafi ekki verið nógu erfitt fyrir Línu Descret, eina skaparatortímandann í gervöllum heiminum, þá fer lífið hennar skyndilega að líkjast söguþræði í vinsælustu myndasögu Createborgar. En hver er að herma eftir hverjum? Fyrr en varir standa hún og systir hennar frammi fyrir mikilli hættu sem virðist sprottin úr martröð frekar en raunveruleikanum.
Hvernig tengist þetta annarri hæðinni á heimili þeirra og mun eitthvað af þessu hjálpa Línu í byltingu tortímendanna?
Bókin er myndskreytt af höfundi og er undir japönskum og vestrænum áhrifum. Þetta er fyrsta bókin af fimm í fantasíuflokknum um Línu Descret.
Útgefandi:Rosa Novella . 2011
546 bls.
http://www.landogsaga.is/section.php?id=7705&id_art=7706
Wednesday, November 16, 2011
Kellingarbækur í Gerðubergi
Verð þarna að kynna og selja bækur. :)
http://www.facebook.com/event.php?eid=256808654366155
http://www.facebook.com/event.php?eid=256808654366155
Laugardaginn 19. nóvember kl 13 - 15 kynna kvenhöfundar verk sín í Gerðubergi undir yfirskriftinni Kellíngabækur. Kynnt verða ný verk af margvíslegum toga – skáldsögur, fræðibækur, ljóðabækur, ævisögur og barnabækur. Þetta er fjórða árið sem Gerðuberg kynnir ritverk kvenna í samstarfi við undirbúningshóp Fjöruverðlaunanna.
Kynnt verða um fjörtíu verk og hafa nemendur við Háskóla Íslands umsjón með upplestrum. Í anddyri verða bækur seldar á sérstöku tilboðsverði auk þess sem höfundar og forleggjarar kynna bækur sínar. Í Gerðubergssafni Borgarbókasafnsins verður sérstök barnadagskrá þar sem lesið verður úr barnabókum, krakkar fá tækifæri til að æfa jóga og foreldrar og börn fá sýnikennslu í nuddi. Í bókasafninu verður einnig sýning á bókum þeirra kvenna sem hlotið hafa Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, síðustu ár.
Það er undirbúningshópur Fjöruverðlaunanna, grasrótarhópur kvenna innan Rithöfundasambands Íslands og Hagþenkis, sem stendur að Kellíngabókum í samstarfi við Menningarmiðstöðina Gerðuberg. Sjá nánar um Fjöruverðlaunahópinn hér...
Ilmandi kaffi og girnilegar veitingar eru í boði hjá Gallerí fiski - veitingastofu Gerðubergs. Undanfarin ár hafa fjölmargir gestir sótt þessa líflegu bókakynningu, notið upplestra og spjallað við höfundana. Ekki missa af Kellíngabókum í ár!
http://www.gerduberg.is/desktopdefault.aspx/tabid-3475/5844_read-29007/
Myndir frá bókamessunni 2011
Það var líf og fjör um helgina á bókamessunni sem var haldin í Tjarnarsal Ráðhússins og Iðnó síðastliðna helgi. Ég og Sif fengu að fljóta með Óðinsauga sem hafði aðstoðað okkur við prentun og dreifingu og deildu saman bás. Stórskemmtilegt og einstakt tækifæri að fá að sjá forleggjarana að störfum. Spjallaði við örfáa þeirra.
Ég vil þakka öllum þeim sem komu á bókamessuna til þess að styðja okkur og hafa gaman af.
Eftirfarandi styrktu básinn okkar.
Ég vil þakka:
Merkt ehf fyrir frábæra þjónustu en þeir bjuggu til þessa fínu boli fyrir mig á engum tíma.
Prentun sem sá um að gera veggspjaldið og bæklingana.
Borgun í samstarfi við Point bjargaði okkur um posann en án hans hefðu við orðið af mörgum góðum viðskiptum.
Að ógleymdu Innes sem reddaði okkur namminu (Mikado) sem var það vinsælasta á básnum hjá okkur.
Vonandi verður bókamessan að árlegri hefð hérna. :)
Fyrir áhugasama er hægt að sjá fleiri myndir hérna.
Thursday, November 10, 2011
Bókamessan í bókmenntaborg!
Verð þarna að kynna sjálfsútgáfu og selja bókina. :)
BÓKAMESSA Í BÓKMENNTABORG
Glóðheitar bækur og fjölbreytt dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó 12. og 13. nóvember
Helgina 12. – 13. nóvember standa Félag íslenskra bókaútgefenda og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO fyrir bókamessu í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó. Í fyrsta sinn er haldin glæsileg bókamessa hérlendis þar sem íslenskir útgefendur kynna nýja titla sem koma út nú fyrir jólin. Um leið verður fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri í Iðnó báða dagana, bæði í stóra og litla sal. Einnig verður dagskrá í kaffihúsi Ráðhússins, Öndinni, og sögubíll Borgarbókasafnsins, Æringi, verður á svæðinu.
Meðal dagskráratriða í Iðnó má nefna „Græna sófann“, en þar fá ýmsir umsjónarmenn, svo sem Egill Helgason, Jórunn Sigurðardóttir og Druslubókadömurnar Kristín Svava Tómasdóttir, Salka Guðmundsdóttir og Hildur Knútsdóttir, til sín góða gesti og spjalla um ólíkar bækur. Sigurlaug M. Jónasdóttir kynnir matgæðinga og matreiðslubækur, Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur ræðir við höfunda ævisagna sem byggja á rituðum heimildum og Jón Proppé listheimspekingur fer yfir íslenska listasögu á 50 mínútum. Leynifélagskonurnar Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir sjá síðan um metnaðarfulla dagskrá fyrir börn.
Að auki verður boðið upp á upplestur, jóga fyrir börn, barnanudd og föndursmiðju, að ógleymdri vísindastund með Ævari vísindamanni. Áhugafólki um stjörnuspeki gefst kostur á að hitta Gunnlaug Guðmundsson stjörnuspeking, Kristín Tómasdóttir svarar spurningum stelpna frá A – Ö og svo mætti lengja telja. Kaffiveitingar verða á boðstólum í Iðnó og á Öndinni og gestir geta því átt notalega stund um leið og þeir kynna sér bókaútgáfu ársins í þessum tveimur byggingum við Tjörnina.
Nánari upplýsingar um messuna má sjá á vef Reykjavíkur Bókmenntaborgar UNESCO, www.bokmenntaborgin.is og þar er einnig hægt að nálgast ítarlega dagskrá.
Um leið vekur Félag íslenskra bókaútgefenda athygli á Bókatíðindum sem dreift verður inn á öll heimili landsins þessa dagana.
Kristján B. Jónasson kbjonasson@gmail.com - S. 8997839 Sigurður Svavarsson sigurdur@opna.is – S.
Auður Rán Þorgeirsdóttir audur.ran.thorgeirsdottir@reykjavík.is – S. 5901524 Kristín Viðarsdóttir kristin.vidarsdottir@reykjavik.is – S. 8634319
http://www.facebook.com/BokmenntaborginReykjavik
Wednesday, October 26, 2011
EINSTAKT TILBOÐ!
Þau eintök sem eru seld í Eymundsson eru á einstöku tilboðsverði. 1699 kr!
Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að kaupa 546 bls kilju undir 2000 kalli.
Uppfært: Bókin kostar nú 1999 kr í öllum helstu verslunum.
www.eymundsson.is/nanar?productid=6599f570-1c86-48ad-9983-e0f7c6da5bd4

Saturday, October 22, 2011
Sýnishorn og fréttir
29.jan-Sýning opnar í Gerðubergi.
16.des Auglýsing í Fréttatímanum, umfjöllun í Laugardalsblaðinu og rafbók á Emma.is
14.des Útgáfuteiti og upplestur í Eymundsson Austurstræti og vefverslunin panama.is
13.des Upplestur í Tjarnarskóla.
7.des Bókin komin í netverslun Nexus.
1.des-Opnunarhátíð Emmu
23.nóv-Farið með bækurnar til Eskifjarðar í póst. (er komið þangað núna)
22.nóv-Pöntun frá bókabúðinni Eskju á Eskifirði. :)
19.nóv- Verð á Kellingarbókum í Gerðubergi frá 13-15, að selja og kynna bókina. Kynningar á bókatitlum eftir kvenmenn og upplestur í þremur sölum. Í tengslum við Fjöruverðlaunin. Fullbókað fyrir upplestur, missti af því en verð þá að finna annað tækifæri seinna.
14.nóv-Bækurnar komnar á borgarbókasafnið og staðfesti þáttöku mína á Kellingarbókum í Gerðubergi.
12-13.nóv- Bókamessan í Reykjavíkurborg, haldin í Tjarnarsal Ráðhússins og Iðnó. Seldi og áritaði 3 bækur. Bókatíðindi komu út! Bókin er á bls 64.
11.nóv- 10 stykki sérpöntun fyrir viðskiptavin í Eymundsson.
8. nóv-Bækurnar komar til Akureyrar. :)
1. nóv- Bækurnar farnar í póst til Akureyrar. Pöntun frá Kringlunni-5 stykki, plús komið á fleiri bókasöfn, í Ölfusi og Mosfellsbæ. :)
31.okt-Pöntun frá Akureyri-15 stykki. Stærsta pöntunin til þessa á einn stað.
Bókin komin á þrjú bókasöfn-Garðabæ, Hafnarfirði og Seltjarnarnesi.
Verðið loksins orðið réttara. 1999 kr í Pennanum og Nexus.
28.okt-Fékk pöntun, 18 stykki alls í Pennann. Þetta er eitthvað að seljast! :D Bóksali á Eiðistorgi vill að ég komi og áriti einhvern tímann. Þarf að útbúa auglýsingaplakat.
29.okt- Fór með fleiri bækur í Pennann.
Eldri fréttir
18-19.október-Bækurnar komu til landsins og komu úr tollinum.
20. október- Fyrsta áritunin
21.október-Örútgáfuteiti og fjórar áritanir til viðbótar. Fékk samning við Pennann og á eftir að ganga frá þeim. :)
22.október-Nexus ætlar að taka bókina í umboðsölu hjá sér! Fer vonandi með eintök til þeirra á morgun (24.okt).
Uppfært, 24.okt hef farið með eintökin í Nexus. Fer með eintök í Eymundsson á morgun. Á eftir að útbúa fréttatilkynningar sem verða samhliða dreifingunni.
25.okt Bækurnar eru komnar í Nexus og helstu búðir Eymundsson (austurstræti, skólavörðustíg, kringlunni, smáralind og hafnarfirði).
Loksins komið sýnishorn fyrir bókina! :)
http://issuu.com/rosanovella/docs/l_na_descret-s_nishorn?mode=window&backgroundColor=%23222222

Sunday, October 9, 2011
Samband mitt við listgyðjuna eða goðið
Fann hérna til gamans dagbókarfærslu á rithringnum, frá því ég kláraði fyrstu þrjár bækurnar. Um samband manns við listagyðjuna eða goðið.
Draumakona 10. Oct 2009 kl 23:43
Já, þau geta verið æði stormasöm samböndin við listagyðjuna. Ósjaldan hefur maður grátið í koddann og öskrað á hana, en alltaf nást að lokum sættir sem eru yndislegri en hvað annað... En mér þykir þó mun skemmtilegra sambandið við listagyðjuna (þarf það endilega að vera gyðja má það ekki vera kynþokkafullt goð í tilviki gagnkynhneigðra kvenna?) heldur en við fólk sem virðist ætíð tilbúið til þess að reka rýting í bakið á manni. Það hefur listagoðið aldrei gert, alveg sama hversu mikið maður finnst hann hafa yfirgefið sig. Reyndar hefur það samt frekar verið þannig að manni finnst hann hafa svikið sig heldur en yfirgefið. Látið mann skrifa eitthvað sem maður taldi verið algert listaverk og daginn eftir er það bara rusl, en svo kannski næsta dag aftur orðið að meistarstykki. Svo á endanum verður maður vitfirrtur og kann engin skil á raunveruleikanum né því hvort að draumurinn hafi einu sinni réttur. Það er frekar þannig eins og hann flissi að baki manns, þar sem maður streðar við að koma því á blað sem hann hefur lagt fyrir mann. Hvíslað því blíðlega að manni að þetta sé það rétta. Hann líkist því oft á tíðum mun meira púka heldur en goði, en það er líka það sem er svo heillandi við hann. Hversu duttlungafullur hann er. Síðastliðna viku hefur mér fundist ég vera svíkja hann, þar sem ég tók mér smá hlé frá skrifum til þess að fara í tölvuleik. En höfundur á aldrei frí. Hann er alltaf annað hvort að skrifa eða hugsa um að skrifa eins og einn höfundur orðaði það og þannig hefur það alltaf verið hjá mér. En tómleikinn við að skrifa ekki er að æra mig. Allt sumarið og nú fram í október hef ég stanslaust verið að skrifa. Í raun alveg frá september á síðasta ári. Rekið mig að tölvunni þrátt fyrir að höfuðið á mér væri að springa eða augun að lokast. Rekið mig á fætur fyrir dögun. En þessi harka skilaði sér í því, að ég náði að klára bókina og því var ekki öll þessi vinna til einskis. Eða hvað...?
Saturday, October 8, 2011
Útgáfudagur komin?
Skv. nýjustu skipaupplýsingum er á von á bókinni 17.október.
Býst því við að bókin detti inn í verslanir svona um 20.október.
Býst því við að bókin detti inn í verslanir svona um 20.október.
Monday, September 12, 2011
Monday, August 15, 2011
Bókin er komin úr prentun og næstum því tilbúin til flutnings.
Subscribe to:
Posts (Atom)