Þau eintök sem eru seld í Eymundsson eru á einstöku tilboðsverði. 1699 kr!
Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að kaupa 546 bls kilju undir 2000 kalli.
Uppfært: Bókin kostar nú 1999 kr í öllum helstu verslunum.
www.eymundsson.is/nanar?productid=6599f570-1c86-48ad-9983-e0f7c6da5bd4
Höfundur og myndskreytir: Rósa Grímsdóttir
Wednesday, October 26, 2011
Saturday, October 22, 2011
Sýnishorn og fréttir
29.jan-Sýning opnar í Gerðubergi.
16.des Auglýsing í Fréttatímanum, umfjöllun í Laugardalsblaðinu og rafbók á Emma.is
14.des Útgáfuteiti og upplestur í Eymundsson Austurstræti og vefverslunin panama.is
13.des Upplestur í Tjarnarskóla.
7.des Bókin komin í netverslun Nexus.
1.des-Opnunarhátíð Emmu
23.nóv-Farið með bækurnar til Eskifjarðar í póst. (er komið þangað núna)
22.nóv-Pöntun frá bókabúðinni Eskju á Eskifirði. :)
19.nóv- Verð á Kellingarbókum í Gerðubergi frá 13-15, að selja og kynna bókina. Kynningar á bókatitlum eftir kvenmenn og upplestur í þremur sölum. Í tengslum við Fjöruverðlaunin. Fullbókað fyrir upplestur, missti af því en verð þá að finna annað tækifæri seinna.
14.nóv-Bækurnar komnar á borgarbókasafnið og staðfesti þáttöku mína á Kellingarbókum í Gerðubergi.
12-13.nóv- Bókamessan í Reykjavíkurborg, haldin í Tjarnarsal Ráðhússins og Iðnó. Seldi og áritaði 3 bækur. Bókatíðindi komu út! Bókin er á bls 64.
11.nóv- 10 stykki sérpöntun fyrir viðskiptavin í Eymundsson.
8. nóv-Bækurnar komar til Akureyrar. :)
1. nóv- Bækurnar farnar í póst til Akureyrar. Pöntun frá Kringlunni-5 stykki, plús komið á fleiri bókasöfn, í Ölfusi og Mosfellsbæ. :)
31.okt-Pöntun frá Akureyri-15 stykki. Stærsta pöntunin til þessa á einn stað.
Bókin komin á þrjú bókasöfn-Garðabæ, Hafnarfirði og Seltjarnarnesi.
Verðið loksins orðið réttara. 1999 kr í Pennanum og Nexus.
28.okt-Fékk pöntun, 18 stykki alls í Pennann. Þetta er eitthvað að seljast! :D Bóksali á Eiðistorgi vill að ég komi og áriti einhvern tímann. Þarf að útbúa auglýsingaplakat.
29.okt- Fór með fleiri bækur í Pennann.
Eldri fréttir
18-19.október-Bækurnar komu til landsins og komu úr tollinum.
20. október- Fyrsta áritunin
21.október-Örútgáfuteiti og fjórar áritanir til viðbótar. Fékk samning við Pennann og á eftir að ganga frá þeim. :)
22.október-Nexus ætlar að taka bókina í umboðsölu hjá sér! Fer vonandi með eintök til þeirra á morgun (24.okt).
Uppfært, 24.okt hef farið með eintökin í Nexus. Fer með eintök í Eymundsson á morgun. Á eftir að útbúa fréttatilkynningar sem verða samhliða dreifingunni.
25.okt Bækurnar eru komnar í Nexus og helstu búðir Eymundsson (austurstræti, skólavörðustíg, kringlunni, smáralind og hafnarfirði).
Loksins komið sýnishorn fyrir bókina! :)
http://issuu.com/rosanovella/docs/l_na_descret-s_nishorn?mode=window&backgroundColor=%23222222

Monday, October 10, 2011
Crea Afternoon Creator
Upprunalegt nafn: Lýra Aftermath
Tegund: Heill skapari
Máttur: Virðist geta brotið niður stein með augnaráðinu einu saman, einnig gler og þrjóska dóttur.
Mamma Línu, fósturmamma Önnu og eiginkona öflugasta tortímandans sem hvarf fyrir tíu árum.
Vinnur sem ritari í alheimshöfuðstöðvunum.
Foreldar: Cre-Atar, byggingarhönnuður og skaparasögukennari á eftirlaunum (afi Línu)
Cre-Atienne, dýralæknir á eftirlaunum, (amma Línu). Þau búa heima hjá henni.
Systkini: Engin sem hún veit um.
Aldur: 34
Elskar/þolir: Fjölskylduna, besta vinkona hennar er Ríta Question, núverandi Críta Light.
Hatar/þolir ekki: að fjölskyldan hennar sé að stefna sér í hættu, Ó mama, tímarit sem hlutgerir kvenfólk, lygi.
Dreymir um að dætur sínar séu öruggar og eðlilegt líf.
Sunday, October 9, 2011
Samband mitt við listgyðjuna eða goðið
Fann hérna til gamans dagbókarfærslu á rithringnum, frá því ég kláraði fyrstu þrjár bækurnar. Um samband manns við listagyðjuna eða goðið.
Draumakona 10. Oct 2009 kl 23:43
Já, þau geta verið æði stormasöm samböndin við listagyðjuna. Ósjaldan hefur maður grátið í koddann og öskrað á hana, en alltaf nást að lokum sættir sem eru yndislegri en hvað annað... En mér þykir þó mun skemmtilegra sambandið við listagyðjuna (þarf það endilega að vera gyðja má það ekki vera kynþokkafullt goð í tilviki gagnkynhneigðra kvenna?) heldur en við fólk sem virðist ætíð tilbúið til þess að reka rýting í bakið á manni. Það hefur listagoðið aldrei gert, alveg sama hversu mikið maður finnst hann hafa yfirgefið sig. Reyndar hefur það samt frekar verið þannig að manni finnst hann hafa svikið sig heldur en yfirgefið. Látið mann skrifa eitthvað sem maður taldi verið algert listaverk og daginn eftir er það bara rusl, en svo kannski næsta dag aftur orðið að meistarstykki. Svo á endanum verður maður vitfirrtur og kann engin skil á raunveruleikanum né því hvort að draumurinn hafi einu sinni réttur. Það er frekar þannig eins og hann flissi að baki manns, þar sem maður streðar við að koma því á blað sem hann hefur lagt fyrir mann. Hvíslað því blíðlega að manni að þetta sé það rétta. Hann líkist því oft á tíðum mun meira púka heldur en goði, en það er líka það sem er svo heillandi við hann. Hversu duttlungafullur hann er. Síðastliðna viku hefur mér fundist ég vera svíkja hann, þar sem ég tók mér smá hlé frá skrifum til þess að fara í tölvuleik. En höfundur á aldrei frí. Hann er alltaf annað hvort að skrifa eða hugsa um að skrifa eins og einn höfundur orðaði það og þannig hefur það alltaf verið hjá mér. En tómleikinn við að skrifa ekki er að æra mig. Allt sumarið og nú fram í október hef ég stanslaust verið að skrifa. Í raun alveg frá september á síðasta ári. Rekið mig að tölvunni þrátt fyrir að höfuðið á mér væri að springa eða augun að lokast. Rekið mig á fætur fyrir dögun. En þessi harka skilaði sér í því, að ég náði að klára bókina og því var ekki öll þessi vinna til einskis. Eða hvað...?
Hugtakalisti
Hugtök Create í stafrófsröð
Cre-nöfn eru tákn um að viðkomandi hafi útskrifast frá skaparaskólanum og eru notuð til þess aðgreina þá frá þeim sem hafa ekki lokið námi. Virðingar og stöðutákn. Það allra formlegasta sem hægt er að kalla skapara fyrir utan nöfn æðstu skaparanna. Forskeytið Cre er fyrir karlkyns en Crea fyrir kvenkyns skapara. Sama er með tortímendanöfn, forskeytið Destroy eða Des fyrir karlkyns, Destroya eða Desa fyrir kvenkyns. Upprunalegu nöfnin, eru nöfnin sem skapararnir höfðu áður en þeir fengu cre-nöfn eða æðsta skapara titil/nafn.

Descret, afi Línu er talinn einn mesti svikari í sögu skaparanna fyrir að hafa skipulagt byltingu gegn æðstu sköpurunum. Hún var bæld í fæðingu, hann handtekinn og tekinn af lífi.
Gjaldmiðillinn: Í Creation jafngildir einn gullpeningur 1000 silfur- og 10.000 bronspeningum.
Fyrir suma sköpun þarf að borga og sérstaklega ef það er eitthvað sem hefur að geyma sérstakar upplýsingar sem eru ekki opnar fyrir öllum eða hlutir sem eru undir höfundarrétti. Þeir sem eru ríkir þurfa þó aldrei að borga og geta sjálfir skapað gull eftir hentugleika.

Hellamanía: Staðurinn þar sem allir fara til í eftirlífinu, heimkynni guðanna. Eitt versta blótsyrðið.
Hinn mikli Síta, hetjan og fyrirmynd hans Sydney sem er eins og guð í hans augum. Frægasti og besti vísindamaður sem upp hefur verið en enginn veit um uppruna hans né hvar hann er í dag.
Hreinsar Heimsins (H.H), trúarhópur sem beitir sig fyrir því að losna alfarið við tortímendur sem þeir telja óhreina. Skapari verður að skapa tortímanda, til þess að losna við tortímandamáttinn sem annars hleðst upp í þeim og verður þeim hættulegur eða þeir neyðast til þess að fara nota. Hreinsarar kalla tortímendur úrgang heimsins og þeirra helsta takmark er að finna lausn til þess að losna við tortímandamáttinn án þess að þurfa að skapa tortímanda. Enn hefur það ekki tekist og í staðinn kúga þeir því tortímendur eins mikið og hægt er.
Kveðjusöngur: Nemendur kveðja veturinn
Leyfissköpun: er sköpun sem krefst þess að viðkomandi verði að fá leyfi frá kastaranum (sá sem framkvæmdi upphaflegu sköpunina) eða verða veitt umboð til þess að komast framhjá eða breyta sköpuninni. Ef ekkert leyfi er fengið hljótast af því misalvarlegar afleiðingar.
Light ættin: Tvær af þeim sjö sköpurum sem Horror Dawn lét taka af lífi voru makar hans, sem höfðu áður borðið ættarnöfnin Light og Rís Fíl. Um leið og afkomendur hans komust að þvi að hann hefði átt þátt í dauða mæðra þeirra, köstuðu þeir heiðurstitlinum Dawn og tóku upp Rís Fíl og Light í staðinni. Sóphía Light Dawn er hluti af síðarnefndu ættinni en hélt báðum ættarnöfnum í stað þess að kasta öðru frá sér eins og vaninn er, af virðingu við formóður sína. Sydney og Nightmare eru af þeir sömu ætt. Langamma þeira var Light og en langafi þeirra var Dawn. Um tíma varð Dawn ættin því Light, þar til að Nightmare hlaut embætti æðsta skapara.
Mánuðurnir eru tólf, hver er með þrjátíu og einum degi: Evening ( eins og feb)- , Sífíría (mars)-, Night (apríl)-, Create (maí)-, Dawn (júní)-, Light (júlí)-, Sunrise (ágúst)-, Rís Fíl (sept)-, Afternoon (okt)-, Destroya-Níta (nóv)-, Morning (des)- og Creation (jan)-mánuður.
Sérstakur hátíðisdagur er fyrir æðstu skaparana, alltaf þann sjöunda í þeim mánuði sem ber þeirra heiti.
Sérstakur hátíðisdagur er fyrir æðstu skaparana, alltaf þann sjöunda í þeim mánuði sem ber þeirra heiti.
Myrkradýflissan: Einangrun; viðkomandi sér ekki til sólar og veit ekkert hvað tímanum líður, á meðan hann er lokaður inni í dýflissunni. Það heyrist ekkert hljóð og virkar því sem eins konar tómarúm.
Skaparamerkið: Efsti broskallinn er tákn fyrir skapara, miðju broskallinn er tákn fyrir mennina en sá neðst er tákn fyrir tortímendur.
Skólakerfið: Í sumum bekkjum eru tveir árgangar hafðir saman og er skipt í tvennt til aðgreiningar, dæmi D- 5-1 (13-14), D-5-2 (14-15).
Ske: Skaparaeiðurinn.
Ask: Almenn sköpun.
Alm: Fr. Almenn fræði.
M.h: Meiri hluti
Ske: Skaparaeiðurinn.
Ask: Almenn sköpun.
Alm: Fr. Almenn fræði.
M.h: Meiri hluti
Steinhringurinn: viðkomandi breytist í myndastyttu. Þar til að hringurinn er tekinn af er viðkomandi fastur í endalausu tómarúmi.
Veðrið: Stöku vindhviður má rekja til eyðurmerkurinnar fyrir utan borgina en blásturinn þar, nær inn til borgarinnar í hvert sinn einhvert hliðanna er opnað. Stundum koma inn leifar af eyðurmerkurstormi og þá heldur fólk sig að mestu innandyra.

En það stranglega bannað að opna öll átta hliðin í einu. Þá gæti alvöru eyðurmerkurstormur komist inn og verðir hverra hliða eiga sjá til þess að, einungis eitt hlið sé opnað í einu. Það má þó opna tvö undir sérstökum kringumstæðum en það er algert hámark. Rigning er sjaldséður hlutur í Create. Þar er heitt allan ársins hring og íbúar glíma aldrei við þurrka, þar sem það er ekkert mál fyrir þau að skapa vatn. Þrátt fyrir nafn Frumskógarnins, eru þar aðrar skógategundir en þar sem að frumskógurinn er hvað mest ríkjandi, hefur þetta nafn fest sig við hann.
Nightmare Dawn
Upprunalegt nafn Sylvester Light.
Sjötti æðsti skapari og þar með sá lægsti í röðinni en lætur eins og hann ráði öllu. Er undir gríðarlegri pressu að halda æðsta skapara sætinu í fjölskyldunni, þar sem það hafði í heilar tvær kynslóðir misst af því vegna glæpsins sem að langafi hans, Horror Dawn framdi.
Myndin sem hangir uppi af langafa Nightmare, Horror Dawn í hásætissal æðstu skaparanna. Nightmare er sagður líkjast honum í útliti og hegðun.
Ásamt því að vera æðsti skapari, er Nightmare líka leyfissköpunarkennari og umsjónarkennari A-bekks, þeirra sem skara fram úr námi.
Tegund: Heill skapari
Aldur: 79
Máttur: Ekki vitað en líklegast vatn.
Foreldrar: Strangtrúaðir Hreinsarar, Sóphía Light eldri og Tómas Light eldri. Látin.
Maki: Crea-Ta (upprn. Tamíra Guilt Creator, kölluð Tammý). Tekin af lífi fyrir að vita hættulegan sannleik.
Systkini: Yngri bróðir og uppeldissonur Sydney Dawn, 35 ára.
Börn: Einn sonur, Tómas Light Dawn, 35 ára.
Barnabarn: Sóphía Light og þó hann segi það ekki upphátt, þá lítur hann líka á Phílí sem barnabarn sitt, þar sem afi hans var besti vinur hans.
Elskar/þolir: Hunda, skriffinnsku, að finna upp tæki, fjölskyldu sína þó hann sýni það ekki og þá sem hann telur sem fjölskylduna sína, sem hann sýnir reyndar ekki heldur, heldur mikið upp á afbragðs nemendur og var systir Phílís, Anna Rís Fíl uppáhalds nemandi hans. Það var honum því mikið áfall þegar að hún fannst látin fyrir tveimur árum síðan.
Hatar/þolir ekki: guðinn Sunrise, tortímendur, Línu (það er þó ekkert persónulegt), reglubrjótara, mótmælendur, þá sem ógna friðinum, createísinn og alla tímaþjófa. Fólk með engan metnað. Að vera æðsti skapari. Að Tea skuli vera svona mikil raggeit og ekki passa betur upp á að fjölskyldan sé ekki að ógna friðinum.
Dreymir um eilífan frið.
Afternoon Tea
Upprunalegt nafn: Billý Desire Creator.
Þriðji æðsti af æðstu sköpurunum og langafi Línu. Á sextán börn með mismunandi konum en veit bara um afkomu yngsta sonar síns, Descrets, þar sem móðir hans yfirgaf hann og Tea þurfti að ala hann upp.
Sonur hans, Descret, er talinn mesti svikari í sögu skaparanna, þar sem hann skapaði öflugasta tortímandann, pabba Línu, Destroy Destroyer (kallaður Des) og ætlaði að nota hann sem vopn til að steypa æðstu sköpurunum af stóli.
Hann var tekinn af lífi fyrir 25 árum síðan og tortímandinn tekinn frá honum.
Ásamt því að vera æðsti skapari er hann líka skaparasögukennari.

Aldur: 501
Máttur: Jörð, getur m.a annars látið trjárætur spretta upp úr jörðinni og vefjast utan um andstæðinga sína, látið jörðina hristast en einnig bara skapað falleg blóm. Eins og allir skaparar getur hann líka læknað.
Foreldrar: Ósköp venjulegir teræktendur og enginn skilur hvernig Tea gat orðið æðsti skapari án þess að vera af æðsta skaparaætt.
Maki: Crea-Níta S. Creator (upprunalegt nafn Aníta), móðir Descrets. Var tekin af lífi fyrir að mótmæla og berjast fyrir réttindum tortímenda.
Börn: Á sextán börn en þekkir bara eitt þeirra, Descret sem var tekinn af lífi fyrir 25 árum síðan, sextugur að aldri.
Systkini: Enginn sem vitað er um.
Elskar/þolir: Te, fjölskylduna sína, að kenna, drekka te, tala um te, hugsa um te.
Hatar/þolir ekki: Kaffi, hvað hann er vanmáttugur og að Nightmare þurfi að vera svona vondur við alla.
Vildi óska þess að hann gæti verið sterkari og lifað í friði.

Subscribe to:
Posts (Atom)